Tónleikar með James Brown
Ég fór á tónleika með James gamla Brown á laugardagskvöldið og verð að segja að ég varð fyrir vonbrigðum og hafði ég samt ekki gert mér háar hugmyndir. Mín fyrta hugsun væri að ég væri komin á tónleika með Lúdó og Stefán, þegar ég sá hljómsveitina koma á sviðið. Held samt að þeir hefur verið betri en þetta, held einmitt að mínir síðustu tónleikar hafi verið með þeim meðal annars fyrir 2 árum síðan. Allir í rauðum hljómsveitarbúning og voða smartir. Eftir 2-3 lög laust sú hugsun niður að þetta með JB á sitt hvorri rassakinnum á hálfnöktum dönsurunum, í einhver skiptin hafi gamli maðurinn dillað aðeins rassinum, ekki með miklum tilþrifum verð ég að segja en kannski miðað við rúmlega 70 ára gamlan mann nokkuð gott og átt klappið skilið.
Ég sat í stúku í einum af bestu sætunum með þjón sem kom með drykki en komst að því að ég hefði trúlega skemmt mér betur niður á gólfi þar sem maður gat hreyft sig aðeins með tónlistinni. Voru aðeins 2 lög sem mér fannst góð og ég kunni að meta, er þar fyrir utan var þetta ekki tónlist að mínum smekk. Karlinn gerði sitt best og kannski á maður ekki að vera krefast of mikið að gömlum mönnum sem eiga ungar konur sem þeir þurfa krafta sína til að sinna.
Niðurstaðan er sú að mikið rosalega er ég fegin að ég borgaði ekki um 10.000 kr, fyrir okkur hjónin inn á þetta, það sá fyrirtækið hjá manninum mínum um.

2 Comments:
Er löngu búin að sjá að ég er röngu megin í húsinu. Við fáum aldrei boða á tónleika. Kannski er peningurinn frekar notaður til að hækka arðgreiðslurnar. En þú nýtur þess þá bara betur að fara á tónleika með Gospelsystrum næst ;) Þar hljóta að hafa betur í samanburði miðað við þessa lýsingu.
Svo skaltu bara tilkynna þig veika áður en þú ferð heim úr vinnunni þá hefurðu allt kvöldið til að sannfæra þig um að þú sért nógu veik til að vera heima.
Gospelsystur eru margfalt betri en þetta og ég borga með glöðu gleði inn á þá það verð sem sett er upp þar.
Ég er búin að gefast upp á því að vera samúðarveik með eiginmanni mínum, hann fer alltaf veikur að vinna þannig að ég nenni þá ekki að vera heim ein. Þarf að fara út að borða í kvöld þannig að ég get ekki tilkynnt mig veika. Aldrei friður til að vera veikur, ömulegt.
Skrifa ummæli
<< Home